Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 24. maí 2018 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp staðfestir að Milner og Can geti spilað
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp er búinn að staðfesta að James Milner og Emre Can séu búnir að ná sér af meiðslum. Þeir munu því líklega taka þátt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid á laugardaginn.

Can er búinn að vera meiddur í tvo mánuði og er sagður vera á för til Ítalíumeistara Juventus í sumar. Þetta gæti verið hans síðasti leikur fyrir Liverpool.

Milner meiddist fyrir tveimur vikum og missti af síðasta deildarleik tímabilsins gegn Brighton.

Engin meiðsli eru innan herbúða Real Madrid en Alex Oxlade-Chamberlain, Joel Matip og Joe Gomez verða ekki með Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner