Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. maí 2018 08:30
Ingólfur Stefánsson
Landsliðsbúningur Nígeríu vinsæll - Yfir þrjár milljónir pantana
Mynd: Getty Images
Nike hafa fengið meira en þrjár milljónir af pöntunum fyrir nýju landsliðstreyju Nígeríu sem liðið mun leika í gegn Íslandi á HM í sumar.

Sala á treyjunni er ekki enn hafin en mikil eftirspurn er eftir treyjunni sem þykir sú flottasta á HM í sumar.

Treyjan fer á sölu í næstu viku en aðdáendur geta ekki beðið. Treyja Nígeríu er tileinkuð HM í Bandaríkjunum árið 1994.

Treyjan er ljósgræn og hvít með svörtum örvum á ermunum.

Nígería er í D riðli á HM í Rússlandi líkt og Ísland, Argentína og Króatía. Ísland mætir Nígeríu 22. júní í Volgograd.
Athugasemdir
banner