Manchester United er í viðræðum við Shakhtar Donetsk í Úkraínu um kaup á miðjumanninum Fred. Sky segir frá þessu í dag.
Manchester United vill ganga frá kaupunum áður en HM í Rússlandi hefst þann 14. júní.
Fred er í landsliðshópi Brasilíu fyrir HM en hann á sjö landsleiki að baki.
Manchester United vill ganga frá kaupunum áður en HM í Rússlandi hefst þann 14. júní.
Fred er í landsliðshópi Brasilíu fyrir HM en hann á sjö landsleiki að baki.
Fred var orðaður við Manchester City í janúar en nú virðist United ætla að landa honum.
Gilberto Silva, fyrrum miðjumaður Arsenal, er umboðsmaður Fred og hann hefur sagt að leikmaðurinn vilji fara í ensku úrvalsdeildina.
Athugasemdir