Leikmenn Liverpool eru komnir til Kænugarðs þar sem þeir spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar við Real Madrid. Margir stuðningsmenn félagsins eru einnig mættir á svæðið.
Fregnir frá Úkraínu herma að fótboltabullur Dynamo Kiev hafi ráðist á stuðningsmenn Liverpool þar sem þeir snæddu kvöldverð.
Fregnir frá Úkraínu herma að fótboltabullur Dynamo Kiev hafi ráðist á stuðningsmenn Liverpool þar sem þeir snæddu kvöldverð.
Stuðningsmennirnir földu sig inni á veitingastaðnum og voru nokkrir þeirra særðir af bullunum. Enginn er talinn vera í lífshættu. Myndband af átökunum er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Liverpool mætti Roma í undanúrslitaleikjunum og réðust fótboltabullur Rómverja á stuðningsmann Liverpool og sendu hann á spítala þar sem þurfti að leiða hann í dá.
Tveir Ítalir voru handteknir vegna árásarinnar og viðurkenndu sökina fyrir rétti í dag.
Athugasemdir