Ólafur Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar var svekktur eftir 3-2 tap gegn Grindavík í 4.umferð Pepsi-deildarinnar
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 3 Grindavík
"Gríðarlegt svekkelsi, það er bara þannig" voru fyrstu viðbrögð Óla við leiknum. "Fúlt að komast yfir, missa þetta niður og vera að elta hluta af leiknum, óásættanlegt"
Grindavík var 2-1 yfir í hálfleik en Stjarnan voru fljótar að jafna í byrjun seinni hálfleiks. "Við yfirspiluðum þær þá og fengum helling af færum en kláruðum þau ekki og fáum svo mark á okkur úr föstu leikatriði"
Hægt er að hlusta á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir