Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin hjá íslensku landsliðskonunni Söru Björk Gunnarsdóttur eru. Sara varð að fara af velli á 57. mínútu í tapi Wolfsburg gegn Lyon í framlengdum úrslitaleik í Meistaradeildinni í dag.
„Maður er búinn að fella nokkur tár en það er kannski skiljanlegt, sagði Sara við mbl.is eftir leikinn í dag.
Sara meiddist á hásin en ljóst er að hásinin er ekki slitin. Hins vegar er líklegt að Sara verði frá keppni í einhvern tíma og ólíklegt er að hún spili með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu í undankeppni HM í júní.
„Ég var búin að vera mjög tæp fyrir þennan leik og ég er pínulítið svekkt út í sjálfa mig með að hafa ýtt mér á þennan stað. En þetta er bara leikur sem allir vilja spila," sagði Sara við mbl.is og bætti við að hún hefði fundið fyrir meiðslum á hásin undanfarnar vikur.
Ísland mætir Slóveníu í undankeppni HM á Laugardalsvelli þann 11. júní en í byrjun september eru síðan stórir heimaleikir gegn Þýskalandi og Tékklandi.
Athugasemdir