Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júní 2016 23:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1. deild kvenna: KH með sinn annan sigur
Myndin tengist fréttinni ekki neitt
Myndin tengist fréttinni ekki neitt
Mynd: Fótbolti.net
A-riðill
KH 3 - 0 Skínandi

1-0 Ísold Kristín Rúnarsdóttir (´5 )
2-0 Eygló Þorsteinsdóttir (´15 )
3-0 Hildur Karítas Gunnarsdóttir (´90 )

Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í dag.

Það var leikur KH og Skínanda í A-riðli, en fyrrnefnda liðið vann frekar þægilegan sigur í leiknum.

Ísold Kristín Rúnarsdóttir og Eygló Þorsteinsdóttir skoruðu tvö mörk með tíu mínútna millibili snemma í fyrri hálfleik.

Staðan í hálfleik var 2-0 og undir blálokin kom þriðja markið. Það skoraði Hildur Karítas Gunnarsdóttir og lokatölur 3-0.

Í riðlinum er KH núna í 4. sæti með sex stig, en Skínandi er með tveimur stigum minna í 6. sæti.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner