Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 24. júní 2016 08:43
Magnús Már Einarsson
Arnór og Elmar um lýsingu Gumma Ben: Við þekkjum þetta
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Ótrúleg lýsing Guðmundar Benediktssonar á sigurmarki Íslands gegn Austurríki hefur vakið heimsathygli.

Erlendir fjölmiðlar eru fjölmennir á fréttamannafundi Íslands sem nú stendur yfir.

Theodór Elmar Bjarnason lagði upp sigurmarkið fyrir Arnór Ingva Traustason og þeir voru spurðir út í lýsinguna hjá Gumma.

„Hann er alltaf mjög spenntur þegar hann er að lýsa leikjum. Þetta er í fyrsta skipti sem þið heyrið þetta en við erum vanir þessu," sagði Elmar.

„Rétt hjá Elmari. Þetta er í fyrsta skipti sem þið heyrið þetta, en við þekkjum þetta," sagði Arnór.

Sjá einnig:
Gummi Ben vekur heimsathygli - „Spangólar á tunglið"



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner