fös 24. júní 2016 12:05
Magnús Már Einarsson
Breiðablik fer til Cardiff í Meistaradeild kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Nú rétt í þessu var dregið í riðla í forkeppni Meistaradeildar kvenna.

Íslandsmeistarar Breiðabliks fara til Cardiff í Wales þann 23-28. ágúst næstkomandi.

Blikar verða þar með heimastúlkum í riðli sem og ZFK Spartak frá Serbíu og NSA Sofia frá Búlgaríu.

Sigurvegari riðilsins fer síðan áfram í 32-liða úrsiltin sem fara fram í október næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner