Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. júní 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Breiðablik kallar Gísla Eyjólfs til baka úr láni
Gísli í leik með Blikum gegn Ólafsvík fyrr í sumar.
Gísli í leik með Blikum gegn Ólafsvík fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Breiðablik hefur kallaði miðjumanninn Gísla Eyjólfsson til baka úr láni frá Víkingi Ólafsvík.

Gísli kom við sögu í tveimur leikjum í byrjun móts með Blikum áður en hann fór til Ólafsvíkinga á láni.

Hjá Víkingi kom Gísli við sögu í þremur leikjum í Pepsi-deildinni.

Gísli er kominn með leikheimild með Blikum á ný og verður löglegur gegn Val í Pepsi-deildinni í kvöld.

Meiðsli hafa verið á miðjusvæðinu hjá Blikum en Oliver Sigurjónsson hefur til að mynda ekki náð að klára nokkra leiki í sumar.
Athugasemdir
banner