Theodór Elmar Bjarnason var stuðningsmaður Manchester United í æsku og á fréttamannafundi í dag spurði enskur blaðamaður hann að því hvort að hann vilji skipta á treyju við Wayne Rooney eftir leikinn gegn Englendingum næstkomandi mánudagskvöld.
„Ef hann biður mig, þá skipti ég á treyjum við hann," sagði Elmar og uppskar hlátur hjá fréttamönnum.
„Hann er frábær leikmaður og hefur verið mikilvægur leikmaður fyrir enska landsliðið í mörg ár. Hann er með mikla reynslu."
„Hann hefur líklega ekki spilað sinn besta leik ennþá á mótinu, en vonandi gerir hann það ekki gegn okkur. Við virðum alla leikmenn enska landsliðsins og við þurfum að eiga frábæran leik til að eiga séns. Við höfum unnið stórar þjóðir áður en ef við einbeitum okkur og gerum það sem við erum góðir í, þá eigum við séns."
Elmar var spurður að því hvort ummæli Cristiano Ronaldo eftir leik Íslands og Portúgal í síðustu hefðu kveikt í íslenska liðinu.
„Það var góð frammistaða liðsins sem náði í úrslitin gegn Portúgal. Við hugsum ekki um þetta. Auðvitað var hann svekktur en hann er ennþá frábær leikmaður og fólk má ekki gleyma því, þrátt fyrir að eitt pirrings augnablik hafi komið svona út," sagði Elmar.
Athugasemdir