Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júní 2016 19:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inkasso-deildin: Tvö rauð er Fram vann Leikni R.
Frammarar unnu sigur á Leikni R.
Frammarar unnu sigur á Leikni R.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Fram 2 - 1 Leiknir R.
0-1 Kristján Páll Jónsson ('49 )
1-1 Hlynur Atli Magnússon ('70 )
2-1 Dino Gavric ('76 )
Rautt spjald: Ingiberg Ólafur Jónsson, Fram (´84 ), Ivan Bubalo, Fram (´90 )
Lestu nánar um leikinn

Fyrsta leik kvöldsins í Inkasso-deildinni var að ljúka, en Fram fékk þá Leikni úr Breiðholti í heimsókn.

Gegni liðanna var frekar mismunandi fyrir leikinn í kvöld, en Fram hefur verið góðu róli undanfarið á meðan slíkt hið sama getur ekki verið sagt um Leikni.

Ekkert mark var skorað í frekar döprum fyrri hálfleik, en snemma í seinni hálfleiknum kom fyrsta markið. Markið skoraði Kristján Páll Jónsson, staðan 1-0 fyrir gestina úr Breiðholtinu.


Frammarar náðu hins vegar jafna metin og komast yfir þegar leið á seinni hálfleikinn. Hlynur Atli Magnússon skoraði fyrst með skalla áður en Dino Gavric bætti við seinna marki Fram.

Á síðustu mínútunum fengu tveir leikmenn Fram að líta rauða spjaldið, en það kom ekki að sök og þriðji sigur Fram á tímabilinu staðreynd.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner