„Það var nú svo sem ekki mikið að gerast í þessum leik“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals í Pepsi deild karla eftir jafntefli gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld.
„Mér fannst Blikarnir vera ofan á lungan af leiknum þannig lagað, meira með boltann en sköpuðu sér ekki mikið. Svo fengum við frábær færi í lokin á leiknum til að stela sigrinum.“
Var kannski hálfgerð EM þynnka í mönnum?
„Já kannski öllum nema ykkur blaðamönnum! Þetta var svona frekar hægt og rólegt eins og flestir leikir hafa verið í þessari EM pásu, það hefur nú verið frekar rólegt yfir þeim. Hver ástæðan er, það veit ég ekki.“
„Ég er ekki með þann stigafjölda sem ég vildi vera með [eftir 9 umferðir] og jafntefli hér í dag eru nánast slæm úrslit fyrir bæði lið. Það er stutt upp en það er líka stutt niður þannig menn verða að vera varkárir.“
„Ég var ánægður með að Breiðablik skyldi ekki skora. Við lögðum það upp að verja markið okkar og verja þetta stig sem við höfðum. Ég er ánægður með það.“
Athugasemdir