Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 24. júní 2016 08:33
Magnús Már Einarsson
Stelpurnar með mesta hástökkið á heimslistanum
Stökkva upp listann.
Stökkva upp listann.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Íslenska kvennalandsliðið fer upp um fjögur sæti á nýjum heimslista FIFA sem var kynntur í dag.

Magnaður útisigur gegn Skotum og burst gegn Makedóníu á heimavelli hjálpuðu Íslandi að stökkva upp í 16. sætið.

Ísland og Sviss eru þær þjóðir sem eiga mesta hástökkið á listanum að þessu sinni.

Heimslisti kvenna:
1. Bandaríkin
2. Þýskaland
3. Frakkland
4. England
5. Ástralía
6. Svíþjóð
7. Japan
8. Brasilía
9. Norður-Kórea
10. Kanada
11. Noregur
12. Kína
13. Holland
14. Spánn
15. Sviss
16. Ísland
17. Nýja-Sjáland
18. Ítalía
19. Suður-Kórea
20. Danmörk
Athugasemdir
banner
banner