Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. júní 2016 11:43
Magnús Már Einarsson
Vardy taldi Arsenal ekki henta leikstíl sínum
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy, framherji Leicester, ákvað að hafna tilboði frá Arsenal þar sem hann taldi leikstíl liðsins ekki henta sér. Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Arsenal reyndi að fá Vardy í sínar raðir á dögunum en í gær krotaði hann undir nýjan samning hjá Leicester.

Vardy sló í gegn þegar Leicester varð enskur meistari á síðasta tímabili en hraði hans nýttist frábærlega í skyndisóknum liðsins.

Arsenal heldur boltanum mikið innan liðsins og andstæðingar þeirra liggja oft aftarlega.

Vardy hafði áhyggjur af því að hraðinn myndi ekki nýtast honum eins vel hjá Arsenal og því ákvað hann að hafna tilboði liðsins samkvæmt frétt Sky.
Athugasemdir
banner
banner
banner