fös 24. júní 2016 15:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vill ráða Gumma Ben til að lýsa á CBS
Icelandair
Gummi Ben hefur vakið gríðarlega athygli
Gummi Ben hefur vakið gríðarlega athygli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spjallþáttastjórnandinn Sthephen Colbert hafði eins og flestir aðrir gríðarlega gaman af tryllingnum sem Gummi Ben tók þegar Ísland skoraði sigurmarkið gegn Austurríki á dögunum.

Colbert talaði um sigur Íslands í þætti sínum á CBS við gríðarlega undirtektir áhorfenda.

Hann hóf svo að tala um Gumma Ben, en hann fór eins og allir vita á kostum þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmark Íslands í leiknum.

Colbert spilaði upptökuna af lýsingu Gumma og stakk svo upp á því að CBS myndi ráða hann til þess að lýsa fyrir þig.

Til þess að styðja mál sitt sýndi hann upptöku að því hvernig það væri ef Gummi myndi lýsa golfi á stöðinni.

Hér að neðan má sjá þetta mjög svo skemmtilega innslag.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner