Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. júní 2017 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bakayoko að velja Chelsea vegna Conte
Bakayoko er á leið til Chelsea.
Bakayoko er á leið til Chelsea.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt fjölmiðlum í Frakklandi er Tiemoue Bakayoko, miðjumaður Mónakó, að fara til Chelsea þar sem hann vill spila undir stjórn hins litríka Antonio Conte.

Bakayoko hefur verið eftirsóttur eftir flotta frammistöðu með Mónakó á tímabilinu sem var að klárast.

Hann hefur m.a. verið orðaður við Manchester United og fleiri lið, en það er Conte sem er ástæðan fyrir því að hann er að velja Chelsea.

N’Golo Kante, sem mun væntanlega spila með Bakayoko, á miðjunni hjá Chelsea á næstu leiktíð, gekk í raðir Lundúnarfélagsins síðasta sumar og þá var Conte líka stór ástæða fyrir því.

Chelsea vill víst klára kaupin á Bakayoko á næstu tveimur vikum. Talið er að hann kosti 40 milljónir evra og það gæti hækkað upp í 50 milljónir evra með tímanum.



Athugasemdir
banner
banner