Jeppe hetjan í þriðja sigri Keflavíkur í röð
Það voru tveir leikir í Inkasso-deildinni í dag, en þeir voru báðir að klárast nú fyrir stuttri stundu.
Leiknir F. fékk Þrótt R. í heimsókn Fjarðabyggðarhöllina þar sem ástríðan ræður ríkjum.
Gestirnir voru ekki lengi að komast yfir, en Viktor Jónsson skoraði strax eftir þrjár mínútur.
Leikurinn byrjaði ótrúlega því Leiknir hafði snúið stöðunni sér í vil þegar sex mínútur voru komnar á klukkuna, 2-1 fyrir Leikni F..
Viktor Jónsson var í stuði, en hann gerði sitt annað mark eftir hálftíma. Fyrri hálfleiknum var ekki lokið þarna því Kristinn Justiniano Snjólfsson gerði sitt annað mark fyrir leikhlé.
Staðan var 3-2 fyrir Leikni eftir ótrúlegan fyrri hálfleik og þannig lauk leiknum. Það var ekkert mark skorað í seinni hálfleiknum.
Annar sigur Leiknis á tímabilinu staðreynd og þeir eru að klífa töfluna. Þetta var annað tap Þróttara í sumar.
Í Keflavík lögðu heimamenn Þór að velli. Það var bara eitt mark skorað og það gerði Jeppe Hansen í seinni hálfleik.
Keflavík hefur unnið þrjá leiki í röð og er með 15 stig, Þór hefur níu stig í 9. sætinu, en það er árangur sem menn eru ekki sáttir með.

Leiknir F. 3 - 2 Þróttur R.
0-1 Viktor Jónsson ('3 )
1-1 Kristófer Páll Viðarsson ('5 )
2-1 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('6 )
2-2 Viktor Jónsson ('30 )
3-2 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('45 )
Lestu nánar um leikinn
Keflavík 1 - 0 Þór
1-0 Jeppe Hansen ('57 )
Lestu nánar um leikinn
Viktor Jónsson fokking elskar að skora í rauðu og hvítu! Lifi! #fotboltinet
— Hörður Óskarsson (@hoddioskars) June 24, 2017
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir