„Það var náttúrulega erfitt að spila fótbolta í dag," sagði Guðlaugur Baldursson, þjálfari Keflavíkur, eftir góðan 1-0 sigur á sterku liði Þórs í Inkasso-deildinni.
„Vindurinn skipaði stóra rullu í leiknum. Það var erfitt að spila, en þá ferðu bara í aðra hluti og við sýndum frábæran karakter og mikinni vilja, og já, skipulagið hélt."
„Vindurinn skipaði stóra rullu í leiknum. Það var erfitt að spila, en þá ferðu bara í aðra hluti og við sýndum frábæran karakter og mikinni vilja, og já, skipulagið hélt."
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Þór
Laugi var ánægður með sína menn í dag.
„Mér fannst þetta vera karaktersigur. Við höfum verið að spila ágætis fótbolta í síðustu tveimur leikjum og þarna kom karakter, bardagi og vilji í ljós," sagði Laugi.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir