Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 24. júní 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Martial stríðir Rashford á Twitter
"Captain Marcus"
Mynd: Getty Images
Það er stuð hjá fótboltamönnunum í sumarfríinu.

Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, leigði sér bát og skemmti sér vel ef dæma má af mynd sem hann setti á Twitter.

Anthony Martial, liðsfélagi hans hjá United, ákvað aðeins að stríða honum og skrifaði við myndina.

„Captain Rashford," skrifaði Martial við myndina og Rashford ákvað að svara: „Captain martial."

Twitter-notendur höfðu gaman af þessu, en það er spurning hvort Martial lítur á Rashford sem framtíðarfyrirliða United. Rashford er aðeins 19 ára gamall, en hann er búinn að vinna sér sæti inn í liðinu hjá Man Utd og var í frekar stóru hlutverki á nýliðnu tímabili.

Hér að neðan má sjá þetta Twitter-grín.









Athugasemdir
banner
banner
banner