„Ég er alveg fáránlega ánægður," sagði Viðar Jónsson, þjálfari Leiknis F. eftir 3-2 sigur á Þrótti í Inkasso-deildinni í dag.
„Síðustu þrír leikir á undan þessum hafa verið flottir hjá okkur. Við höfum samt bara fengið þrjú stig og ég vissi það að ef við myndum halda áfram af sama krafti, þá myndi það detta í dag."
„Síðustu þrír leikir á undan þessum hafa verið flottir hjá okkur. Við höfum samt bara fengið þrjú stig og ég vissi það að ef við myndum halda áfram af sama krafti, þá myndi það detta í dag."
Lestu um leikinn: Leiknir F. 3 - 2 Þróttur R.
„Ég er alveg fáránlega stoltur af liðinu."
Leiknismenn fengu mark á sig snemma, en þeir komu til baka og unnu leikinn að lokum.
„Þetta hefur verið veikleiki hjá okkur, við höfum verið að fá á okkur mörk snemma í leikjum, en þetta sýnir karakterinn í strákunum og að menn eru að þroskast sem leikmenn."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir