Watford hefur keypt miðjumanninn Will Hughes frá Derby County.
Hughes skrifar undir fimm ára samning, en talið er að kaupverðið geti farið upp í 7 milljónir punda með tímanum.
Hughes er í miklum metum hjá Derby, en hann var aðeins 16 ára gamall þegar hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir félagið.

Hann er nú kominn í nýtt lið og mun reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni með Watford.
Liverpool og Arsenal er meðal félaga sem hefur fylgst reglulega með Hughes á þeim sex árum sem hann hefur spilað á Pride Park.
Hughes er 22 ára og er í Póllandi núna með enska U21-landsliðinu sem er að keppa á Evrópumóti þess aldursflokks.
OFFICIAL: #watfordfc is delighted to confirm the signing of England Under-21 midfielder Will Hughes from Derby County on a five-year deal. pic.twitter.com/KmGrqsOxjE
— Watford FC (@WatfordFC) June 24, 2017
Athugasemdir