sun 24. júní 2018 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristján Guðmunds spáir í leik Japan og Senegal
Kristján Guðmundsson.
Kristján Guðmundsson.
Mynd: Raggi Óla
Japan og Senegal eigast við í öðrum leik dagsins á HM í Rússlandi og hefst sá leikur á slaginu 15:00.

Japan vann óvæntan sigur á Kólumbíu í fyrstu umferðinni á meðan Senegal vann einnig óvæntan sigur, gegn Póllandi.

Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, í Pepsi-deild karla spáir í spilin fyrir þennan leik.

Japan 0 - 1 Senegal (klukkan 15:00)
Athyglisverðir og góðir sigrar þessara liða á fyrsta leikdegi. Japanir verða að leggja áherslu á að halda boltanum innan sinna raða í baráttunni gegn líkamlega sterkari Senegölum.

Það er möguleiki á að þessi leikur verði ekki eins opinn og margir aðrir leikir á leikdegi tvö þar sem eitt stig úr þessari viðureign er dýrmætt. Ég spái Senegal 1-0 sigri í leik þar sem þeir nýta líkamlega yfirburði sína til hins ýtrasta.
Athugasemdir
banner
banner
banner