Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. júní 2018 18:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pogba: Kannski mitt síðasta Heimsmeistaramót
Mynd: Getty Images
Paul Pogba er í franska landsliðhópnum sem leikur í C-riðli á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi þar sem Frakkaland er á toppi riðilsins, Danmörk, Perú og Ástralía leika í sama riðli.

Þessi 25 ára gamli miðjumaður stefnir á að fara alla leið á mótinu og verða Heimsmeistari.

„Kannski er þetta mitt síðasta Heimsmeistaramót, maður veit aldrei hvað gerist."

„Þetta er búið að vera frábær tími, ég ætla að hunsa gagnrýnisraddir og gera mitt besta inn á vellinum það er eina leiðin til að svara fyrir sig."

„Ég ætla að gefa allt sem ég á fyrir þjóð mína, Frakkland. Ég vil vinna þetta mót," sagði Paul Pogba en Frakkland mætir Danmörku í lokaumferð C-riðils á þriðjudaginn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner