Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   sun 24. júní 2018 19:55
Ester Ósk Árnadóttir
Sandra María Jessen: Þetta verður spennandi fram að síðustu umferð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er rosalega sátt með svokallaðan 6 stiga leik, ég er bara stolt af liðinu," sagði Sandra María Jessen fyrirliði Þór/KA eftir 2-0 sigur á móti Breiðablik í dag en hún skoraði bæði mörk Þór/KA.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 -  0 Breiðablik

Leikskipulagið gekk upp hjá Þór/KA í dag.

„Við lögðum upp með skipulagðan og agaðan varnarleik, við ætluðum að leyfa þeim að vera svolítið með boltann og velja svo pressu móment. Það gekk mjög vel upp og við náum síðan að sækja á þær með skyndisóknum."

Sandra María er búinn að skora 7 mörk í 6 leikjum.

„Það er alltaf gaman að skora og maður stefnir alltaf að því að vera meðal þeirra markahæstu."

Pepsí-deild kvenna hefur farið skemmtilega af stað.

„Þetta er rosalega spennandi og skemmtilegt sumar, mörg lið sem eru að koma á óvart í deildinni. Efri liðin að standa sig vel líka þannig þetta verður spennandi fram að síðustu umferðinni held ég."

Þór/KA spilar á móti Val í næstu umferð Pepsí-deildar kvenna á Hlíðarenda.

„Það er bara skemmtilegt verkefni, við höfum oft átt erfitt með þær. Það er ekkert annað í boði en að gíra okkur niður eftir þetta, leyfa okkur að njóta í tvo tíma en síðan er bara fókusinn settur á þann leik. Ég held við séum bara allar spenntar og getum ekki beðið eftir að sá leikur verði flautaður á."
Athugasemdir
banner