Þorsteinn Halldórsson þjálfari Breiðabliks var að vonum ekki ánægður með 2-0 tap á móti Þór/KA á Akureyri í dag, „Leikurinn var tiltökulega jafn, baráttuleikur. Þetta var barningur út og suður. Það var lítið um færi og örugglega ekki rosalega gaman að horfa á leikinn."
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 0 Breiðablik
Þór/KA skoruðu tvö mörk í dag.
„Þær bara skoruðu mörkin sem telja í þessu. Við vorum ekki nógu góðar á síðasta þriðjungnum og sköpuðum ekki nógu mikið, við erum ekkert endilega sátt við okkar leik."
Breiðablik fékk nánast enginn færi í dag og það kom lítið út úr föstum leikatriðum.
„Ég hef engar áhyggjur af því, þetta getur alltaf komið fyrir að þú lendir í off degi. Aðalatriðið er að rísa upp á lappirnar og vera klár í næsta leik. Við settum mótið ekki þannig upp að við færum taplausar í gegnum það, við settum það þannig upp að við ætlum að vinna alla leiki sem við förum í og svo tökum við bara niðurstöðunni úr því."
Breiðablik sýndi ekki sínar bestu hliðar í dag.
„Það var mikið af sendingarfeilum í dag. Við vorum ekki á okkar besta degi í sendingum og ákvarðantökum, þá sérstaklega á síðasta þriðjungnum."
Athugasemdir