sun 24. júní 2018 17:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Young: Allir skiluðu sínu í dag
Ashley Young í baráttunni í leiknum í dag.
Ashley Young í baráttunni í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
England fór illa með Panama fyrr í dag þar sem lokatölurnar voru 6-1 sigur þeirra fyrrnefndu.

Ashley Young var skiljanlega gríðarlega sáttur þegar hann mætti í viðtal í leikslok.

„Ég held að allir sem horfðu á leikinn hafi séð hversu mikið sjálfstraust við höfum. Þetta hefði geta verið fullkomin frammistaða en það var hins vegar leiðinlegt að fá sig þetta mark, þetta var engu að síður mjög góð frammistaða. Allir skiluðu sínu í dag," sagði Young.

„Ég hef sagt það áður að samstaðan í hópnum er mögnuð, við erum lið sem viljum spila boltanum, allir vilja fá boltann, allir vilja vera með."

„Við verðum að halda áfram á þessari braut því ef við gerum það getum við náð langt," sagði Ashley Young að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner