Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 24. júlí 2014 13:30
Magnús Már Einarsson
Crouch: Bojan er ennþá ótrúlega hæfileikaríkur
Crouch í baráttunni.
Crouch í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Peter Crouch er mjög spenntur fyrir því að spila með Bojan Krkic í framlínu Stoke á komandi tímabili.

Hinn 23 ára gamli Bojan skaust ungur fram á sjónarsviðið með Barcelona en hann hefur síðan þá leikið með Roma, AC Milan og Ajax.

,,Samningurinn við hann sýnir hvað félagið getur gert," sagði hinn 33 ára gamli Crouch.

,,Hann er topp leikmaður og hann hefur verið hjá einu af bestu félögum í heimi. Sú staðreynd að hann er ungur og vill koma til Stoke City sannar að við erum metnaðarfullt félag sem leikmenn vilja ganga til liðs við."

,,Þegar hann skaust fram á sjónarsviðið með Barcelona var hann frábær og hann er ennþá ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður."

,,Sú staðreynd að við fáum hann þegar hann er ennþá ungur þýðir að við munum vonandi hafa hann á bestu árum ferilsins."

Athugasemdir
banner
banner