Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 24. júlí 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin - Leikir dagsins: Hörkuleikir hjá FH og Stjörnunni
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Stjarnan og FH spila í Evrópudeildinni í kvöld en bæði lið eru í góðum séns á að komast í næstu umferð í undankeppninni.

Stjarnan fær Motherwell í heimsókn á Samsung-völlinn en fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli í Skotlandi þar sem Ólafur Karl Finsen skoraði tvisvar úr vítaspyrnu fyrir íslenska liðið.

FH gerði á meðan 1-1 jafntefli við Neman í Hvíta-Rússlandi og er því í ágætum málum fyrir leikinn í Kaplakrika. Kristján Gauti Emilsson skoraði mark FH-inga en hann gekk til liðs við NEC Nijmegen í Hollandi í gær.

Leikir dagsins:
19:15 Stjarnan - Motherwell (Samsung-völlurinn)
19:15 FH - Neman (Kaplakrikavöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner