Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 24. júlí 2014 18:57
Daníel Freyr Jónsson
FH gæti mætt Elfsborg - Stjarnan til Póllands?
FH gæti mætt Elfsborg frá Svíþjóð.
FH gæti mætt Elfsborg frá Svíþjóð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Takist FH að slá út Neman Grodno í forkeppni Evrópudeildarinnar mun liðið mæta Elfsborg frá Svíþjóð.

Þetta var ljóst fyrir skömmu þar sem Elfsborg sló út Inter Baku frá Aserbaídjan eftir vítaspyrnukeppni.

Þá sló pólska liðið Lech Poznan út Kalju frá Eistlandi og mætir annaðhvort Stjörnunni eða Motherwell.

Bæði FH og Stjarnan standa ágætlega að vígi fyrir síðari leikina gegn andstæðingum sínum í kvöld. FH gerði 1-1 jafntefli gegn Neman á meðan Stjarnan náði 2-2 jafntefli gegn Motherwell. Bæði FH og Stjarnan eiga heimaleiki í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner