Vonast til að fá 1-2 leikmenn
,,Með sigri í dag hefðum við blandað okkur í toppbaráttuna en eftir þennan ósigur verðum við að berjast við að falla ekki," sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindavíkur eftir 2-0 tap gegn ÍA í kvöld.
,,Í fyrri hálfleik spiluðum mjög vel og í seinni hálfleik héldum við boltanum betur. Þetta voru tvö jöfn lið en þeir voru heppnir að skora fyrra markið eftir okkar mistök og síðara markið eftir innkast."
Milan Stefán býst við að fá liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.
,,Það er mjög erfitt að finna leikmenn. Allir strákar á bekknum í dag voru í 2. flokki. Okkur vantar 1-2 leikmenn til að breikka hópinn og við munum reyna það."
Juraj Grizlej leikmaður Grindvíkinga meiddist gegn Leikni í síðustu viku. ,,Hann er rifbeinsbrotinn og verður frá keppni í 2-3 vikur í viðbót að minnsta kosti. Tomislav (Misura) er líka meiddur og Scott Ramsay er kviðslitinn. Hann fer í aðgerð eftir síðasta leik en við verðum að nota hann og hann er að standa sig vel."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir