fim 24. júlí 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kári fær til sín reynslumikla leikmenn (Staðfest)
Guðjón Heiðar Sveinsson er kominn í Kára
Guðjón Heiðar Sveinsson er kominn í Kára
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Kári í fjórðu deild karla hefur fengið til sín fjóra leikmenn fyrir seinni hluta deildarinnar en þrír af þeim eru með mikla reynslu úr efstu deild.

Guðjón Heiðar Sveinsson, Hjálmur Dór Hjálmsson, Stefán Örn Arnarson og Fjalar Örn Sigurðsson gengu til liðs við Kára á dögunum.

Guðjón Heiðar tekur aftur upp skóna en hann lék síðasta með ÍA í Pepsi-deildinni sumarið 2012. Hann hefur leikið um 220 leiki fyrir ÍA á ferlinum og ljóst að mikill styrkur er í honum.

Hjálmur Dór Hjálmsson tekur einnig upp skóna en hann lék einnig síðast með ÍA fyrir tíu árum síðan.

Stefán Örn Arnarson er þá einnig kominn til félagsins en hann á marga leiki að baki fyrir Keflavík, Víking Reykjavík og Reyni Sandgerði. Hann lék síðast með ÍA en honum tókst að fá rautt spjald í fyrsta leik með Kára er liðið gerði 1-1 jafntefli við Álftanes í gær.
Athugasemdir
banner
banner