FH-ingar unnu 2-0 sigur gegn Neman Grodno í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld í Kaplakrika. Þetta var seinni leikur liðanna en FH fer samtals áfram 3-1 og mætir Elfsborg í næstu umferð.
„Þetta var fínn leikur af okkar hálfu. Við héldum hreinu eins og við ætluðum að gera," sagði Ólafur Páll Snorrason, fyrirliði FH.
Í stöðunni 1-0 fyrir FH áttu gestirnir nokkur skot á markið.
„Við höfðum litlar áhyggjur af þeim. Við hjálpuðum hvor öðrum og það var í raun ekkert hættumerki að mínu mati í leiknum," sagði Ólafur.
„Það er frábært fyrir klúbbinn að ná enn einu Evrópuárinu og við erum ekkert hættir. Það var mikið hugsað um leik Inter Baku og Elfsborg í dag, ég viðurkenni það. Við erum ánægðir með að niðurstaðan er sú að við förum til Svíþjóðar."
„Elfsborg er gríðarlega sterkt lið en við leggjumst í þá sem andstæðinga eftir leikinn gegn Fylki og ég hlakka til að spila í Svíþjóð."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir