Rodrigo, leikmaður Benfica í Portúgal, hefur samþykkt eins árs lánssamning hjá Valencia en Valencia staðfesti þetta í gær.
Rodrigo, sem er 23 ára gamall, lék með unglingaliðum Real Madrid áður en hann gekk til liðs við Benfica árið 2010.
Hann hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár en liðið vann þrennuna í Portúgal á síðustu leiktíð.
Nú er útlit fyrir að hann spila í heimalandinu á komandi tímabili en Valencia og Benfica hafa komist að samkomulagi um kappann og á hann einungis eftir að fara í læknisskoðun og skrifa undir samning.
Hann skrifar undir eins árs lánssamning en Valencia á möguleika á að kaupa hann næsta sumar.
Athugasemdir