Arnar Már Guðjónsson var glaður í bragði eftir 2-0 sigur ÍA á ÍBV í fyrsta leik kvöldsins í Pepsi deild karla.
Arnar Már var sérstaklega ánægður með frammistöðuna í fyrri hálfleik en þá komu bæði mörk Skagamanna.
„Í heildina var þetta bara mjög góður leikur, fyrri hálfleikur sérstaklega. Við náðum að spila boltanum og skorum tvö frábær mörk."
Skagamenn voru afar ósáttir við rauða spjaldið sem Darren Lough fékk.
„Þetta var aldrei brot. Ég spurði dómarann og hann sagði að hann hefði farið fyrst í boltann en svo í manninn þannig að ég átta mig ekki á því af hverju það er brot."
Nánar er rætt við Arnar Má í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir