Liverpool hefur samþykkt tilboð Bournemouth í bakvörðinn Brad Smith.
Smith er 22 ára Ástrali og var hann með Liverpool í Bandaríkjatúr þeirra en hann flýgur nú heim til Enlands að ganga frá kaupum og kjörum sínum við Bournemouth.
Fari félagskiptin í gegn, verður Smith annar leikmaður Liverpool á stuttum tíma sem fer til Bournemouth en Jordon Ibe fór þá leið fyrir skemmstu.
Smith verður sjötti leikmaðurinn sem Bournemouth fær til sín fyrir leiktíðina og ætlar liðið sér stóra hluti í ár.
Athugasemdir