Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 24. júlí 2016 10:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
„Luke Shaw einn sá besti í heimi"
Shaw og Herrara ræða málin
Shaw og Herrara ræða málin
Mynd: Getty Images
Ander Herrera, miðjumaður Manchester United, segir að Luke Shaw sé einn af besti vinstri bakvörður heims.

Shaw er nýkominn til baka eftir erfitt fótbrot og spilaði hann í 45 mínútur í æfingaleiknum gegn Wigan á dögunum.

Hann gerði svo gott um betur og spilaði allar 90 mínúturnar gegn Dortmund á föstudag og er Herrera himinlifandi með að Shaw sé mættur aftur.

„Við erum allr mjög ánægðir með að hann sé kominn til baka. Þetta er búið að vera erfitt. Hann er einn besti vinstri bakvörður í heimi og það var vont að vera án hans. Hann spilaði 90 mínútur eftir að hafa ekki spilað í tíu mánuði, það er vel gert," sagði Herrera.
Athugasemdir
banner
banner
banner