Garðar Gunnlaugsson hélt uppteknum hætti í markaskorun í kvöld þegar ÍA fékk ÍBV í heimsókn í fyrsta leik kvöldsins í Pepsi deild karla.
Skagamenn unnu 2-0 með mörkum Garðars og Ármanns Smára Björnssonar en þetta var fimmti sigur ÍA í röð.
„Þetta var hrikalega vel spilað af okkar hálfu. Við byrjuðum leikinn mjög vel og dóminerum leikinn fyrstu 30-35 mínúturnar," sagði Garðar eftir leik.
Garðar skoraði eitt af mörkum tímabilsins með langskoti sem fór í slána og inn.
„Ég þarf að sjá þetta aftur í sjónvarpinu en strákarnir sögðu að þetta hafi verið mjög flott," segir Garðar.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir