Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. júlí 2016 15:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gary Neville: Íslendingar voru frábærir
Gary Neville.
Gary Neville.
Mynd: Getty Images
Gary Neville hefur loks tjáð sig um tap Englands gegn Íslandi á EM í Frakklandi.

Neville spjallaði við Sunday Times um mótið og þá sérstaklega um tapið gegn Íslandi.

„Ég hafði fulla trú á því sem við vorum að gera þangað til síðasta klukkutímann gegn Íslandi. Ég bjóst ekki við þessu. Ég veit ekki hvað gerðist þennan síðasta klukkutíma. Við höfum ekki verið svona slappir í tvö ár."

„En verum sanngjarnir, Íslendingar voru frábærir. Ég hélt við myndum ná að jafna, ég var sannfærður um það en svo gerðist það bara ekki," sagði Neville.
Athugasemdir
banner
banner
banner