ÍA vann sinn fimmta sigur í röð í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á ÍBV á Akranesvelli í kvöld.
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var að vonum ánægður með leikinn en ósáttur við dómara leiksins fyrir að reka Darren Lough af velli.
„Ég var nokkuð sáttur, heilt yfir. Ósjálfrátt bökkum við í 2-0 og það kom meiri þungi í sóknarleikinn hjá þeim en okkur leið nokkuð vel með það að verjast."
„Bæði spjöldin sem hann fékk voru algjört kjaftæði. Fyrra spjaldið er ekki spjald og ég get ekki betur séð en að hann fari beint í boltann í seinna atvikinu," segir Gunnlaugur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir