Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. júlí 2016 22:25
Magnús Már Einarsson
Ivanovski staddur í Makedóníu - Með Fjölni í næsta leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daniel Ivanovski var fjarri góðu gamni í liði Fjölnis í 2-2 jafntefli gegn Val í kvöld.

Ivanovski er staddur í heimalandi sínu Makedóníu og var ekki með í kvöld.

Hans Viktor Guðmundsson stóð vaktina í vörninni við hlið Tobias Salquist í fjarveru Ivanovski.

„Ivanovski þurfti að fara heim, það var vitað fyrir seasonið að hann myndi þurfa að fara á þessum tímapunkti. Hann verður kominn inn fyrir næsta leik," sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis í viðtali eftir leik.

Næsti leikur Fjölnis er gegn ÍBV miðvikudaginn 3. ágúst næstkomandi.


Gústi: Það er ekki verið að refsa einum né neinum hér
Athugasemdir
banner
banner
banner