Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði mögulega mark tímabilsins í 2-0 sigri ÍA á ÍBV í dag.
Garðar skoraði þá með þrumuskoti af löngu færi en boltinn fór í slána og inn.
Garðar skoraði þá með þrumuskoti af löngu færi en boltinn fór í slána og inn.
Smelltu hér til að sjá markið á vef Vísis
Garðar er nú kominn með ellefu mörk í tólf leikjum í sumar en átta af þessum mörkum hafa komið í síðustu fimm leikjum.
Guðmundur Torfason, Pétur Pétursson, Þórður Guðjónsson og Tryggvi Guðmundsson eiga saman markametið í efstu deild en það er 19 mörk.
Garðar er kominn með 11 mörk í tólf leikjum og á Twitter síðu Fótbolta.net er nú könnun í gangi þar sem spurt er hvort Garðar muni bæta metið.
Garðar Gunnlaugs er kominn með 11 mörk í sumar. Nær hann að bæta markametið (19 mörk)?
— Fótboltinet (@Fotboltinet) July 24, 2016
Athugasemdir