Grasshopper spilaði í 1. umferð svissnesku deildarinnar í dag.
Rúnar Már Sigurjónsson hefur farið ansi vel af stað með félaginu og var hann í byrjunarliðinu í sínum fyrsta deildarleik með liðinu.
Svo fór að Grasshopper vann Lausanne, 2-0 og skoraði Brasilíumaðurinn Caio bæði mörkin.
Rúnar Már skoraði tvö mörk gegn KR á dögunum ásamt því að hann skoraði í fyrsta vináttuleiknum með Grasshopper og fer lífið hans í Sviss því vel af stað.
Athugasemdir