Ítalíumeistarar Juventus hafa staðfest kaupin á kantmanninum Federico Bernardeschi fyrir 40 milljónir evra.
Hann kemur til Juventus frá Fiorentina.
Hinn 23 ára gamli Bernardeschi mætti í höfuðstöðvar Juventus í morgun og gekkst undir læknisskoðun. Hann skrifaði í kjölfarið undir fimm ára samning sem gildir til ársins 2022!

Bernardeschi skoraði 11 mörk á síðasta tímabili fyrir Fiorentina, en það vakti mikla reiði hjá stuðningsmönnum Fiorentina að hann væri að ganga til liðs við erkifjendurna í Juventus.
Þeir ákváðu að láta reiði sína í ljós með því að setja borða fyrir utan heimavöll liðsins, en á honum stóð meðal annars: „Hver myndi ekki vilja skyrpa í andlitið á þér," og var því beint að Bernardeschi.
OFFICIAL: @fbernardeschi is a Bianconero! ⚪️⚫️ https://t.co/A3Tk4jziG1 #BenvenutoFederico pic.twitter.com/eJBArf2GGw
— JuventusFC (@juventusfcen) July 24, 2017
Athugasemdir