Laurent Koscielny sér ekki ástæðu fyrir því af hverju hann ætti að yfirgefa Arsenal í sumar.
Koscielny hefur verið orðaður við Þýskalandsmeistara Bayern München, sem og uppeldisfélag sitt, Marseille.
Koscielny hefur verið orðaður við Þýskalandsmeistara Bayern München, sem og uppeldisfélag sitt, Marseille.
Hann er þó ekki á förum, hann vill vera áfram í Lundúnum.
„Þegar ég kom hingað fyrst, þá hugsaði ég ekki um það hvað ég yrði hér lengi - en nú er ég að hefja mitt áttunda tímabil og ég er mjög ánægður með það," sagði Koscielny við Standard.
„Ég er ánægður á hverjum degi, ekki bara í fótboltanum, líka með fjölskyldu minni í Lundúnum."
„Ég er með langan samning við Arsenal og það er engin ástæða fyrir mig að fara eitthvert annað."
Athugasemdir