Það var pirringur í miðjumanninum Naby Keita á æfingu hjá þýska félaginu RB Leipzig í dag. Ralph Hasenhuttl, þjálfari Leipzig, flautaði í dag af æfingu hjá félaginu eftir ljótt brot Keita á Diego Demme.
Keita er sagður vilja fara til Liverpool en enska félagið hefur verið á höttunum á eftir honum í sumar.
Leipzig hefur hafnað 66 milljóna punda tilboði í Keita í sumar og talið er að það hafi komið frá Liverpool. Næsta sumar getur Keita farið á 48 milljónir punda samkvæmt klásúlu í samningi hans.

Keita var greinilega eitthvað pirraður á æfingu Leipzig í dag, en hann og liðsfélagi hans, Diego Demme, áttust við.
Demme átti hörkutæklingu á Keita á æfingunni. Keita var ekki sáttur og svaraði fyrir sig með hrottalegri tæklingu á Demme, en sá síðarnefndi lá grátandi eftir í kjölfarið.
Hasenhuttl flautaði þá æfinguna af og sendi leikmenn upp á hótel.
Sjá einnig:
Keita pirraður - Æfing blásin af eftir hrottalega tæklingu
RB Leipzig hefur nú birt myndband á Twitter-síðu sinni til að sína að engin illindi séu á milli Demme og Keita.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
Naby means no harm 😅 Diego #Demme has a message for #DieRotenBullen fans and a special physiotherapist too! pic.twitter.com/t8kccgCJC8
— RB Leipzig English (@RBLeipzig_EN) July 24, 2017
Athugasemdir