„Ég hef alltaf sjálfstraust," sagði Pedro Hipolito, þjálfari Fram eftir 3-0 sigur á Leikni R. í Inkasso-deildinni í kvöld.
Þetta var fyrsti sigur Fram síðan Pedro tók við. Hann var greinilega ánægður með sinn fyrsta sigur.
„Leikmennirnir eru mjög sterkur og trúa á vinnu. Þessi sigur kemur seint, en við áttum skilið að vinna tvo síðustu leiki okkar."

Lestu um leikinn: Fram 3 - 0 Leiknir R.
Pedro segist aldrei hafa verið áhyggjufullur þrátt fyrir slæma byrjun.
„Ég hafði aldrei áhyggjur," sagði Pedro.
Pedro hefur verið á Íslandi í nokkrar vikur og hann kann vel við fótboltann sem hér er spilaður.
„Ég kann vel við fótboltann hérna vegna þess að það er mikil ákefð í honum. Hann er mjög líkamlegur, leikmennirnir hafa frábært viðhorf og leikirnir eru mjög erfiðir."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir