Ronald Koeman, þjálfari Everton, hefur mikinn áhuga á að fá Cuco Martina, leikmann Southampton til félagsins.
Kaupverðið er um 2.5 milljónir punda en Martina er hægri bakvörður. Hann lék undir stjórn Koeman hjá Southampton.
Hann er ekki partur af plönum Claude Puel, þjálfara Southampton en hann kom þangað frá Twente, síðasta sumar.
Martina var ekki í leikmannahóp Southampton í leikjunum gegn Watford og Manchester United í upphafi leiktiðar.
Athugasemdir