Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 24. ágúst 2016 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Raggi Sig og félagar mæta Boro
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikir hefjast samtímis í enska deildabikarnum í kvöld þar sem Fulham á heimaleik við Middlesbrough.

Ragnar Sigurðsson er nýgenginn til liðs við Fulham en ólíklegt er að hann komi við sögu í kvöld.

Burnley, sem vann Liverpool 2-0 um helgina, á útileik gegn Accrington Stanley og þá fær Sunderland C-deildarlið Shrewsbury Town í heimsókn.

Bournemouth heimsækir Morecambe og eru þetta fjórar síðustu viðureignir 64-liða úrslita bikarsins.

Leikir kvöldsins:
18:45 Fulham - Middlesbrough
18:45 Accrington - Burnley
18:45 Sunderland - Shrewsbury
18:45 Morecambe - Bournemouth
Athugasemdir
banner
banner
banner