Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 24. ágúst 2016 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Hart: Við Guardiola útkljáum þetta eins og menn
Joe Hart gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir City.
Joe Hart gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir City.
Mynd: Getty Images
Joe Hart, markmaður Manchester City hefur trú á að hann og Pep Guardiola, þjálfari liðsins útkljái vandamál sín eins og menn.

Ansi líklegt þykir að markmaðurinn yfirgefi Manchester City þar sem Guardiola treystir honum ekki sem aðalmarkmanni. Willy Caballero hefur hingað til staðið á milli stanganna í deildarleikjum liðsins.

Talið er að Claudio Bravo, markmaður Barcelona sé á leiðinni til félagsins en Joe Hart fékk samt sem áður að spila í Meistaradeildinni gegn Steaua Bucharest.

„Við erum með frábæran þjálfara sem félaginu hefur lengi langað til að fá. Hann er með sitt álit á hlutunum. Ég og hann erum að útlkljá þetta eins og menn og við munum finna lausn."

„Ég spilaði í kvöld og ég naut þess og ég hef alltaf notið þess. Manchester City er félag sem ég elska og þetta var mjög sérstakt í kvöld," sagði Hart.
Athugasemdir
banner
banner